Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Angarnir mínir . . .

Misstu þig í ruglið . . .

Hahaha, bara skemmtileg afþreying

Ljósadýrð!Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Óútskýrð ljós sáust á himni

Ljósfyrirbrigði sást á himni við suðurströndina undir klukkan ellefu í gærkvöldi og bárust lögreglunni á Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum og Veðurstofunni nokkrar tilkynningar um það.
Frá Hlíð undir Eyjafjöllum, þar sem veður var heiðskírt og stjörnubjart, lýsti þetta sér sem skær blossi, eins og neon-grænn, og síðan komu tvær rákir eins og eftir þotur, nema mun breiðari. Þær sáust í hátt í hálftíma. Sjónarvottur í Vestmannaeyjum lýsir rákunum sem reyk. Talið er hugsanlegt að ljósagangurinn stafi frá loftsteini, eða -steinum, sem hafi komið inn í gufuhvolfið og brunnið upp. (www.visir.is)

Já þetta var sko ekkert venjulegt stjörnuhrap. Þvílík ljósadýrð!!
Við Þráinn vorum einmitt úti í rétt í gærkvöldi þegar ég sá allt í einu þvílíkan blossa og mjög breiða og litríka ljósrák skótast eftir himninum. Var svona græn, blá og rauð og mjög skær. Á eftir komu breiðar rákir eins og ljósrauður reikur. Þær mátti sjá lengi á eftir þótt þær dofnuðu á skömmum tíma.

Stjörnuhrap... loftsteinn...geimskip... ?? Wink

Gaman að þessu Laughing

Það var sem sagt verið að sækja folöld á sláturhús hjá okkur í gær. Þessi tími finnst mér alltaf leiðinlegur í lífi bóndans, þ.e. sláturtíðin. En þetta er bara gangur lífsins, bara gott þegar þetta er búið.

Þessi tími er samt líka gleðilegur því við völdum 19 gimrar, 4 hrúta og 15 folöld til ásetnings Smile Þvílíkt sem manni finnst alltaf öll folöldin falleg á haustin. Maður fyllist bjartsýni og sér framtíðargæðingana alveg í hyllingum. Alltaf gott að vera bjartsýnn og jákvæður á lífið og tilveruna Smile

Ég fór norður um helgina og átti ljúfar stundir í faðmi fjölskyldunnar. Vantaði bara Þyrey systur, en hún fór í skírn alla leið á Raufarhöfn. Það var verið að skíra drenginn hans Snævars frænda og Evu. Hann fékk nafnið Gunnar Brimir í höfuðið á afa sínum og langaafa.

Daði og Hörður vissu ekki að ég var að koma og voru þvílíkt hissa og ánægðir að sjá mig.

Ég var svo heppin að fá að passa Evu Rún og Hlífar Óla meðan mamma þeirra var í burtu. Það var meiriháttar gaman ,enda hitti ég þau alltof sjaldan þessar elskur Smile Þau voru náttúrulega alveg svakalega stillt og yndisleg. Við höfðum það rosalega gott í Víðiholti og skruppum nokkuð víða í heimsóknir. Fórum í Brekkutúnið og hittum Guggu og Bríeti, fórum í Hátún og hittum alla fjölskylduna þar. Loksins er ég búin að hafa það af að koma í Gröf, ekkert komið þangað síðan þau fluttu Frown Á laugardainn forum við svo í Laugarbakka og fengum heitt kakó og kræsingar að hætti ömmu.
Á sunnudagsmorgun litum við svo í heimsókn á Laugarveginn til Þorbergs, Birnu og strákanna. Kom svo heim í Oddakot á sunnudaginn, fékk bjart og fallegt keyrsluveður þótt það væri vissulega hállt. Rosalega er alltaf gott að koma heim Smile Sem sagt góð helgi í alla staði.

Meira um loftsteininn (sem þetta var víst) hérna:

www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/28/litrikt_loftsteinahrap_a_himni

Leiðinda veikindi.Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Fór í Skagafjörðinn um síðustu helgi á þorrablót og tóks á ná mér í svakalega kvefpest og hef legið í rúminu alla vikuna Fýldur

Ég skil nú ekkert í því að maður verði alltaf jafn hissa þegar maður uppgötvar að ánægjan af þorrablótinu verði ekki eins mikil og ætla mætti. Ekki það að ég skemmti mér mjög vel... en það skyggir alltaf á að einhverjir sjá hjá sér þörf til að drekka frá sér allt vit áður en haldið er á þorrablót. Að ég tali nú ekki um hefðina fyrir fjölskyldurifrildi og helst slagsmálum ef hægt er að koma þeim inní dagskrána.

Fyrirhöfnin búin að vera mikil eins og alltaf. Hálfur dagur fór í að búa til sviðasultu. Mamma búin að standa í eldhúsinu allan daginn til að trogin verði glæsileg og nóg af mat fyrir 50 manns þótt við höfum nú bara verið 10 í ár. Búið að spá mikið í því hvað dressi maður eigi nú að klæðast á þessum árlega stórviðburði og tilhlökkunin orðin mikil.

Jæja, gestirnir mæta á föstudegi og þá hefst drykkjan. Þegar ég hugsa til baka þá hefur stundum verið svo mikið fyllerí á föstudeginum fyrir þorrablót að það hafa ekki allir séð sér fært að mæta á blótið sjálft daginn eftir, eða alla vega farið heim eftir borðhaldið... Í ár komust nú allir á blótið, enda drifið í því að rétta sig við á laugardagsmorgun. Þegar laugardagurinn ef langt liðinn og farið að styttast í kvöldið þá týndist fólkið inn. Ég ákvað að drífa mig snemma í sturtu og var tilbúin löngu fyrir brottför aldrei þessu vant. En allir hinir áttu eftir að fara í sturtu og græja sig og engum lá neitt sérstaklega á. Það gekk nú samt ótrúlega vel fyrir sig og þegar bílstjórinn mætti á svæðið var einn í sturtu og allir hinir búnir og langt komnir með að búa sig... Nema einn.... sá ónefndi aðili sá sko enga ástæðu til að vera að eyða tíma í að fínisera sig eitthvað fyrir þetta blót, bara drekka meira, syngja og hafa gaman. Mér leist nú ekki á að neinn færi í fjósagallanum á blótið þannig að íhugað var að skilja bara aðilann eftir og hætta þessu veseni. En auðvitað má ekki skilja neinn eftir á svona kvöldi þannig að það var gengið í að skipta um föt á manninum. Það gekk svona líka ljómandi vel og innan skamms var lagt af stað á blótið.

Get nú ekki sagt að borðhaldið hafi verið neitt sérstaklega skemmtilegt, alla vega ekki fyrr en Pólverjinn sem var með okkur drapst. Þá loksins gat maður farið að fylgjast aðeins með skemmtiatriðunum. Enda venja á Víðiholtsborðinu að vera með hárreisti og almenn leiðindi á meðan á borðhaldi stendur, svo við fáum nú örugglega nóga athygli. Jæja, mér tókst nú samt að hlægja eitthvað af skemmtiatriðunum, ekki síst þeim sem áttu sér stað á okkar borði. Ákvað að sjá þorrablóts stemmninguna með edrú augum svona einu sinni. Mæli nú ekkert sérstaklega með því nema fyrir einstaklega þolinmóðar manneskjur, tjaa, alla vega ekki ef þú ætlar að sitja við Víðiholtsborðið :) En jújú, þetta var fínasta skemmtun enda ákvað ég að hlægja bara að þessu.

Ballið var svo mjög skemmtilegt og ég ákvað að fara snemma heim ásamt mömmu, pabba og Jóni Ívari. Það leið svo ekki á löngu þar til hinir borðfélagarnir týndust heim með tilheyrandi látum. Úfff, get ekki beðið eftir næsta blóti :)

Setti inn nokkrar myndir undir linknum myndir hér vinstra megin. Hafið það gott!!

Úti er alltaf að snjóa...Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Já veturinn er loksins genginn í garð. Hér hefur snjóað heilmikið og í kjölfarið kom alveg feikna frost þannig að snjórinn er sko ekkert á förum. Vegurinn heim til okkar er mokaður á mánudögum og föstudögum og þar af leiðandi er ekki ætlast til þess að maður sé neitt að þvælast þess á milli.

 

Nú kólnandi veður orsakar alls kyns uppákomur til að stytta manni stundir. Mýsnar verða svangar og kaldar og álpast inn í hús. Við fengum einmitt einn slíkan gest í heimsókn í síðustu viku, hún var eitthvað að sýsla í elshúsinu og húsfreyjan og húsbóndinn voru nú ekki par ánægð með það. Þá var ekkert annað í stöðunni en að fara á músaveiðar. Við vorum nú ekki lengi að handsama litla skottið, vopnuð kökubauk sem hún fékk að dúsa í þar til henni var sleppt, fjarri íbúðarhúsinu. Fékk sem sagt ókeypis bíltúr fyrir bröltið.

 

Í gærkvöldi fór svo að flæða niður stigann ofan af efri hæðinni hjá okkur. Við nánari athugun kom í ljós að það hafði myndast gosbrunnur inni í kompu undir súð og þaðan streymdi vatnið. Það hafði sem sagt sprungið rör, glatað! Þráinn fór niður í kjallara og skrúfaði fyrir vatnið og svo fórum við í að týna út úr kompunni. Þar voru fleiri fleiri kassar af mjög merkilegum pappírum og auðvitað allt á floti.

 

Og nú er sem sagt allt frosið í hestuhúsinu vegna þess að við þurftum að skrúfa fyrir vatnið.         Já manni leiðist sko ekki í kuldanum, hann sér manni sko fyrir nóg af  verkefnum og snjórann erfiðar manni ferðina yfir landið.

 

En frostkvöldin eru vissulega falleg með stjörnubjörtum himni og norðurljósum sem dansa um himininn.

 

Hér er svo að myndast Skagfirðinganýlenda, mér til ómældrar ánægju J Þórey Elsa er farinn að vinna við tamningar hérna skammt frá mér og Logi og Fanney eru líka að temja í næsta nágrenni. Við skelltum okkur út á lífið um daginn, fórum fyrst í smá teiti á Hvol milli Selfoss og Hveragerðis. Eftir það fóru Logi og Fanney heim en ég og Þórey fórum á ball með Ný dönsk í Hvíta Húsinu á Hvolsvelli. Það var heilmikið fjör og mikið dansað og hlómsveitin náttúrulega alveg frábær!

 

Ég og Þráinn fórum á Þorrablót í Gunnarshólma um síðustu helgi þar sem Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar lék fyrir dansi. Þetta var fyrsta þorrablótið mitt utan Skagafjarðar og var líka með nokkuð öðrum hætti heldur en tíðkast í Skagfirðinum. Á boðstólnum voru ýmsar kræsingar og maður þurfti ekki að koma með neitt sjálfur, tja nema til að væta kverkarnar J Það var sem sagt hlaðborð og í aðalrétt var heitt saltkjöt með öllu tilheyrandi. Og svo var úrval af súrmat, sviðum, harðfisk og öllu sem tilheyrir þorranum. Sem sagt glæsilegt í alla staði. Skemmtiatriðin voru ágæt og ballið fínt. Við fórum snemma heim, en tókum að sjálfsögðu snúning á dansgólfinu fyrst.

 

Framundan er svo Þorrablót í Skagafirði um næstu helgi og tilhlökkunin er mikil. Sjáumst öll þá í rífandi stemmningu og tökum almenninlega á því!!

Ný könnun komin inn !!!

Þriðja jæja !!!Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Alltaf hef ég nú dálítið gaman af því þegar fyrsta hríðarkastið kemur, allar götur fyllast af snjó og  þá er sko vissara að hafa skóflu í skottinu. Þetta gerðist einmitt um síðustu helgi, nánar tiltekið laugardaginn 17. nóvember 2007. Þann dýrðardag var frændi minn skýrður og hlaut hann nafnið Hlífar Óli. Svona í tilefni dagsins þá ákváðu Þyrey systir og Dagur Þór að gifta sig. Þetta kom skemmtilega á óvart en ég fékk þó að vita þetta með nokkurra daga fyrirvara þar sem ég var svaramaður, auk þess að hljóta þann mikla heiður að vera Guðmóðir hans Hlífars Óla, nafna míns J. Eva Rún stóð sig með stakri prýði í kirkjunni. Hún var í miklum ábyrgðar hlutverkum því hún var hringaberi og tilkynnti einnig nafnið á drengnum. Já heilmikil tímamót í lífinu þennan hríðardag.

 

Eftir athöfnina var afbragðs veisla í Hólatúninu. Þar gúffuðu gestir í sig kökum, tartalettum og alls kyns kræsingum, það var skálað og háfleyg orð látin falla... Gestum fór smám saman fækkandi, ég og Jón Ívar urðum eftir til að hjálpa til við frágang og opna pakkana J Um tvöleytið stóð til að halda heim á leið. Á miðri götunni var stór snjóskafl... Taktu bara gott tilhlaup heyrist í Jóni Ívari. Hmmm, ókey... BRRRRUUMMMM, ísssskkrrr!!! Gjörsamlega pikkföst!! Brúðguminn varð að stökkva út í kalda vetrarnóttina með skóflu og moka og moka og moka, ýta, moka, ýta, moka aðeins meira og svo ýttu hann og Jón Ívar af öllu afli og hananú bíllinn losnaði og við Jón Ívar brunuðum heim í sveit. Já gaman að þessu þegar maður þarf ekki að fara sjálfur út í kuldann, en það hefur samt eflaust bara verið hressandi... svona á brúðkaupsnóttina, hehe! Kærar þakkir fyrir það J

 

Lífið í Oddakoti er alltaf jafn ljúft. Búskapur, ást og kúr J Haustverkin hafa gengið einstaklega vel og frystikistan orðin full af mat, reykt, nýtt og saltað. Þannig að það verður tekið vel á móti öllum sem leggja leið sína til okkar í sveitina!

 

Við Þráinn fórum á villibráðahlaðborð á Hótel Hvolsvelli í gærkvöldi. Þar fengum við að bragða á ýmsum framandi réttum t.d. kengúru, strút og dádýr. Eftir matinn var dansleikur en ríflega helmingurinn af fólkinu hélt heim á leið fljótlega eftir matinn. Þegar við fórum heim voru mjög fáir eftir og við vorum komin heim klukkan rétt rúmlega tvö. Já, Sunnlendingum finnst gott að vera heima hjá sér J

Feðgar létu lífið í hringekju í Frakklandi!!!Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Feðgar létu lífið og tveir slösuðust alvarlega þegar vagn í kraftmikilli hringekju losnaði frá og hrapaði til jarðar í gærkvöldi. Slysið varð í skemmtigarðinum "La Fête des Loges" sem er fjörutíu kílómetrum vestur af París. Hinir slösuðu voru í för með þeim látnu.

Hringekja af sömu tegund hefur nú verið tekin úr umferð í ferðatívolí sem nú er statt í Svíþjóð vegna slyssins.
 

http://www.visir.is/article/20070805/FRETTIR02/70805029
 


Það er sem ég segi svona tæki eru náttúrulega bara hræðileg!!! Betra að halda sig á niðrá jörðinni með candy floss og kíkja svo í klessubílana!

 

En að öðru. Ég tók þá ákvörðun í byrjun sumars að vinna um verslunarmannahelgina og er búin að standa vaktina síðan á föstudag. Hellingur að gera í gær en heldur minna í dag, mér til mikillar ánægju.


Annars er ekkert títt hjá mér. Lífið gengur sinn vanagang og mér líður ljómandi vel hérna á Suðurlandinu. Á föstudaginn hefst svo viku fríið mitt og ég hlakka mikið til. Þá verður ferðast um Austur- og suðausturland í góðum félagsskap Brosandi
Næsta norðurferð er ekki ennþá plönuð, en mæti alla vegana galvösk í réttir í haust!


Setti inn nýja könnun Ullandi

Þá er það ljóst...Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Hvar verður þú í sumar??

27. apríl 2007
Skagafirði ( 37% / 17 atkvæði )
Reykjavík ( 9% / 4 atkvæði )
Suðurlandi ( 20% / 9 atkvæði )
Norðurlandi ( 13% / 6 atkvæði )
Austurlandi ( 0% / 0 atkvæði )
Vesturlandi ( 0% / 0 atkvæði )
Útlöndum ( 0% / 0 atkvæði )
Hér og þar ( 15% / 7 atkvæði )
Þér kemur það ekki við ( 7% / 3 atkvæði )
Ég veit það ekki ( 0% / 0 atkvæði )

Samkvæmt þessum niðurstöðum eru Skagfirðingar stærsti hópur þeirra sem skoða bloggið mitt og sunnlendingar verma annað sætið mér til mikillar ánægju. Lifið heil ;)

Helgarfrí!Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Það lítur út fyrir að það verði lítið um þurrk um helgina. Af því tilefni er ég að hugsa um að skella mér í helgarfrí í Skagafjörðinn Brosandi Reikna náttúrulega með því að fá afmælisköku þegar ég mæti á svæðið þar sem stelpan verður 22 ára föstudaginn 20.júlí. Eðal aldur alveg hreint Hlæjandi

Hef annars voða lítið að segja, ætlaði bara að boða komu mína.

Ætla að skella inn hérna smá getraun: Hver er maðurinn??

Þekki ég mann í Þjófahlíð,
-þykir að slíku gaman-
hans er brúnin blökk og síð,
bjartur ekki í framan.
Herðalotinn, limamjór,
lítið kann til verka,
hálslangur og höfuðstór,
með höndina eigi sterka.


Reiðigjarn og þykkjuþrár

þegninn kann að blóta
lastyrðin og lygaspár
lætur af vörum fljóta.

Hann af allra hrösun gleðst,
sem hundur sat við spýju;
aldrei græðgin í honum seðst,
þó eti mat við tíu.


Nú vill þjóðin frétta fá,

hver fagra lýsing eigi:
....... ....... heitir sá-
af honum rétt ég segi.

Veðursæld cEdda Hlíf Hlífarsdóttir

Já hér í Rangárþingi eystra er búið að vera sól og blíða undanfarið. Við Þráinn notuðum tækifærið og erum komin vel af stað í heyskap. Næstu vikur verður áframhaldandi heyskapur hér í Oddakoti, enda af nógu að taka.

 

Ferðamannastraumurinn eikst í takt við góða veðrið, þannig að það er nóg að gera í vinnunni líka, mér til mikillar ánægju Svalur

 

 Þó að það sé mikið að gera þá verður sumarið nú ekki eintóm vinna því til stendur að fara í ca. viku frí í ágúst. Þá ætlum við Þráinn að fara á ættarmót (hjá einni af móðurættunum mínum) í Svartaskóg stutt frá Egilsstöðum. Ætlum að sjálfsögðu að nýta tækifærið, skoða okkur um og heimsækja Seyðisfjörð sem er heimabær Þráins.

 

Mamma, pabbi, Daði, Hörður, Þyrey og Eva Rún ætla svo að slást í för með okkur í bakaleiðinni og klára hringinn. Alltaf gaman að vera túristi á Íslandi og að ég tel, alveg nauðsynlegt annars lagið Brosandi Og auðvitað alveg einstaklega skemmtilegt að hafa alla fjölskylduna með sér!! Þau ætla svo að gista hjá okkur og líta á búsældina hérna í Oddakoti.

 

Endilega kommentið og þá sérstaklega vel þegið á fá fréttir úr firðinum fagra Glottandi

 

Ps. Ennþá edrú, 2 mánuðir !!! Hlæjandi

Edrúmennska.Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Mánuður !!!

 

Já þið heyrðuð rétt, nú er Edda búin að vera edrú í mánuð, nánar tiltekið síðan 12 maí. Þetta er sem sagt alveg gerlegt, ótrúlegt en satt! J  Og vitiði hvað, þetta er bara alls ekkert svo hræðilegt. Reyndar bara alveg ljómandi gott líf meira að segja. Þótt sumir eigi eflaust erfitt með að trúa því J, nefni engin nöfn...

 

Og nei ég ætla ekki að halda uppá þetta með því að hrynja í það! Nei, stelpan stefnir stolt á áframhaldandi edrúmennsku. Búin að taka þá ákvörðun að ná sér í einhverja áfanga í edrú-skóla-lífsins J

 

Annar er það helst að frétta að mér líkar stórvel hérna á Suðurlandinu. Enda ekki kynnst nema úrvals fólki hérna. Nóg að gera í vinnunni sem er gefandi og fjölbreytt. Hér er auðugt mannlíf, fallegt umhverfi, mikið um áhugaverða staði og stöðugur straumur af ferðamönnum.

 

Toppurinn á tilverunni er svo auðvitað sveitalífið sem á vel við mig. Vorið er sérstaklega ánægjulegur tími og þá er líka nóg að gera. Eins og það getur verið gaman í sauðburðinum þá er líka alltaf gott þegar honum líkur og dálítil ró færist yfir. Svo eru folöldin hvert öðru fallegra þegar þau eru svona lítil og krúttleg og greinilega erfitt val framundan þegar tekin verður ákvörðun um hvað á að setja á.

 

Það er mikil gróðursæld hérna í Landeyjunum og komin dágóð slægja á túnin. Þvílíkt sem gróðurinn hérna tekur fljótt og hratt við sér og maður hreinlega sér grasið spretta.

 

Síðastliðna helgi var ég í fríi í vinnunni og var sú helgi vel nýtt. Við Þráinn skelltum okkur í girðingavinnu og gekk það alveg prýðisvel. Á sunnudaginn komu svo Margrét, Stefý og Agnes til okkar og lögðu okkur lið við smölun og sorteringu á hrossunum. Kærar þakkir fyrir hjálpina! Frábært að fá góða Skagfirðinga í lið með sér og alltaf skemmtilegt að fá vini og vandamenn í heimsókn J Við tókum úr hesta og þær merar sem eiga ekki að fara undir stóðhest. Stóðmerarnar rákum við svo aftur uppá mýri, þar sem þær bíða spenntar eftir flottum fola...

What time of day are you ??Edda Hlíf Hlífarsdóttir

You Are Sunset
Even though you still may be young, you already feel like you've accomplished a lot in life.
And you feel free to pave your own path now, and you're not even sure where it will take you.
Maybe you'll pursue higher education in a subject you enjoy - or travel the world for a few years.
Either way, you approach life with a relaxed, open attitude. And that will take you far!
Síða 1 af 3

Teljari

Könnun

Hver af þessum teiknimyndum er best?